Efnafræðistúdentinn kemur inn og fer að segja mér einhverjar fréttir sem ég er strax búin að gleyma aftur.
Móðirin: -Æi, nú truflaðirðu mig í tölvuleiknum og ég drapst.
Efnafræðistúdentinn: -Þessum tölvuleik sem þú ert búin að vera að spila í hálft ár?
Móðirin: -Bull, það er langt síðan ég spilaði hann síðast.
Efnafræðistúdentinn: -Fyrir utan í gærkvöldi?
Móðirin: -Ja ...
Efnafræðistúdentinn: -Busted!
Reyndar man ég núna að ég var alls ekkert að spila neinn tölvuleik í gærkvöldi. Þá var ég að lesa Harry Potter. Hlýtur að hafa verið í fyrrakvöld ...