Samkvæmt því sem nýja blaðið Hér og nú segir hvílir skuggi yfir Skólavörðuholtinu af því að eitthvert ungleikarapar er að skilja.
Ég sem hélt að ég byggi á Skólavörðuholtinu.
Annars sé ég að félagar mínir hjá Séðu og heyrðu hafa misst af aðalskúbbi nýja keppinautarins: Ingvi Hrafn er hættur að þurfa að vakna á nóttunni til að pissa.
Svo eru þeir að klikka á upphrópunarmerkjunum. Muna ekki eftir þeim nema í svona annarrihverri fyrirsögn.