Eitthvert sluddamenni barði blásaklausan efnafræðistúdentinn í rot á skemmtistað í nótt. Til allrar hamingju virðist hann nú ekki hafa beðið varanlegan skaða af og það stórsér ekki á honum.
Ég ætti náttúrlega að vera góð mamma og vera heima í kvöld til að nostra við hann. En hann fær ekki einu sinni kvöldmat. Ég er nefnilega að fara í brúðkaupsveislu og veit ekkert hvenær ég kem heim.
Æijæja, hann bjargar sér.