Ég sé að þegar ég var að telja upp í gær dippidúttana sem ég eignaðist í utanlandsferðinni gleymdi ég einum af hinum merkari, sem er lárperuskerinn minn; hann bæði afhýðir lárperurnar og sker þær í jafnar og snyrtilegar sneiðar. Eða svo segir teorían; ég var að vígja hann áðan en hann virkaði ekki alveg eins og hann átti að gera. Kannski klaufaskapur í mér. En ég var reyndar með alveg óvenju litla lárperu, ég held frekar að það hafi verið ástæðan.
Og svo verð ég að hafa eggjasalat bráðum til að geta prófað eggjastapparann.