(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

20.6.05

Mér fannst Tórínó mjög fín borg til að slappa af í. Ástæður:

1) Það er fullt af fínum kaffihúsum í Tórínó. Og stutt á milli þeirra.

2) Maður þarf ekkert sérstaklega að stressa sig á veðrinu út af öllum súlnagöngunum; getur verið alltaf í skugga og þarf ekki að hafa áhyggjur af að sólbrenna og ef fer að rigna sest maður bara á næsta kaffihús. Úti eða inni.

3) Mér fannst Tórínó frekar afslöppuð borg; það kann að vera reginmisskilningur en þannig virkaði hún á mig.

4) Og síðast en ekki síst: Það er ekkert í Tórínó sem maður verður að sjá. Fullt af áhugaverðum hlutum, það vantar ekki, en ekkert sem maður nagar sig í handabökin fyrir að hafa misst af. Ég spurði Ítali sem ég hitti í Asti hvort þeir gætu bent mér á eitthvað sem ég yrði að skoða í Tórínó og svarið var alltaf: ,,Sko, þú getur skoðað ..." Þannig að maður getur með góðri samvisku leyft sér að gera ekki neitt nema rölta á milli kaffihúsa.

(Nú spyr kannski einhver: En hvað með þetta fræga Tórínólíkklæði? Er það ekki eitthvað sem allir verða að skoða?

Sko, í fyrsta lagi hef ég mjög takmarkaðan áhuga á blessuðu líkklæðinu. Í annan stað sá ég eftirlíkingu af því en það var óvart. Og í þriðja lagi verður það víst næst til sýnis almenningi árið 2025 og svo lengi hefði ég aldrei nennt að bíða.)

|