(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

8.5.05

Það var bara einu sinni hringt í gemsann minn á meðan ég var úti. Þetta var Gallup og ætlaði að kanna skoðanir mínar á einhverjum fjandanum, ég stoppaði konuna af áður en hún gat sagt mér það og bað hana að hringja seinna þar sem ég væri erlendis.

Ég var reyndar að hugsa um að segja henni að ég stæði á brókinni inni í mátunarklefa en það hefði jú verið ósatt og ég er þekkt fyrir sannsögli (alveg satt). Ég var reyndar í Illums en ég var bara að skoða ansi snotra græna peysu sem var bara fimm númerum of lítil og fimmhundruð (dönskum) krónum of dýr. Svo að ég lét mátunarklefann eiga sig.

Ég held reyndar að Gallup hafi verið að hringja áðan en ég var ekki nógu fljót að svara. Sama er mér. Gallup ætti að halda sig við að hringja í efnafræðistúdentinn, hann er svo svaragóður.

|