Ég er í minnihluta á mínu heimili. Sonurinn og tengdasonurinn eru að horfa á fótbolta frammi í stofu. Þeir eru skyndilega orðnir mun kátari en þeir voru áðan.
Ég hélt að leikurinn væri að verða búinn svo að ég fengi stofuna mína aftur og gæti farið að horfa á BBC Food eða eitthvað. En það er víst framlenging svo að það verður ekki á næstunni.