Fyrirsætur þola alveg að bíða í klukkutíma málaðar og uppdressaðar ef ljósmyndarinn tefst án þess að láta á sjá að ráði. Eða það ímynda ég mér, ég er svosem ekkert inni í fyrirsætubransanum. Nema náttúrlega það sem ég hef lært af að horfa á Americas Next Top Model.
Matur þolir þetta miklu síður.
Ljósmyndarinn sem ætlaði að koma og taka grillmyndir hjá mér klukkan hálfsjö hringdi fimm mínútur í hálf og lét vita að hann tefðist um klukkutíma. Ég var reyndar ekki búin að grilla allt sem ég ætlaði en ég þarf örugglega að vera grimm með pensilinn á eftir svo að þetta líti sæmilega út. (NB ég er ekki að meina málningarpensil, svo slæmt er það nú ekki, heldur olíupensil.)
Og aumingja efnafræðistúdentinn fær ekki kvöldmatinn sinn á réttum tíma því að hann fær að borða leifarnar.
Ojæja. Hann lifir það af.