Mér er svo kalt að ég er komin í hippaslána mína sem ég keypti þegar ég var nærri króknuð á King's Road í London, fjöldamörgum árum eftir að hippatímabilinu lauk. Hún hefur alltaf verið þrautalendingin þegar mér er kalt innanhúss en ég fer ekki í henni úr húsi. Þetta er ekki þannig flík.
Vona að ég sé ekki að verða veik, ég þarf að elda eina sjö rétti í fyrramálið. Síðasti hlutinn af mjög stórum þætti sem ég er að gera fyrir næsta blað.