(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

4.3.05

Um daginn var ég hálfpartinn búin að komast að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa tekið nokkur netpróf, að ég væri líklega einhverf trukkalessa. Þetta fannst efnafræðistúdentinum gífurlega fyndið og ég held að hann hafi borið það út um allan bæ. Ég er horfin frá þessari skoðun en er komin á það að ég sé líklega masókisti.

Ég þurfti heldur ekkert netpróf til að komast að þessari niðurstöðu. Þarna er ég búin að liggja, þrisvar í þessari viku, marflöt á bekk á nærbuxunum og láta hnoða og kreista og teygja og merja vesalings hnéð á mér. Og í dag tók steininn úr þegar farið var að stinga nálum í viðkvæmustu og aumustu blettina. Og ofan í kaupið tala ég dönsku á meðan.

Svo er ég að borga fyrir þessar píningar. Og líður alveg ljómandi vel á eftir.

Ég er örugglega masókisti.

|