Samkvæmt matseðlinum frá Matborðinu á að vera ,,tær eggjaskeljasúpa" í matinn á morgun. Ég bíð spennt. Ætli sé eggjaskurn í súpunni? Ætli þetta sé skelfiskssúpa með eggjum? Ætli sé eggskel í súpunni - mér finnst eggskel einmitt svo góð?
Svo pantaði ég mér líka kjötbollur með sultutaui. Það er vissara, tæra eggjaskeljasúpan er sennilega ekki matarmikil.