Mig minnir að það hafi verið Don Martin sem einhvern tíma teiknaði seríu þar sem boldangskvenmaður var að nudda hrygginn á einhverjum mannaumingja og gerði það svo rösklega að húðin slitnaði í sundur og við það poppuðu augasteinarnir út úr tóftunum á karlgreyinu og allt í þeim dúr.
Þetta datt mér einmitt í hug áðan þegar sjúkraþjálfarinn var að nudda hnéð á mér.