Formúluáhugamaðurinn dóttursonur minn kynnir sig um þessar mundir sem Trulli þegar hann svarar í símann heima hjá sér. Ekki veit ég hvers vegna hann hefur svona mikið dálæti á kappanum en Jarno Trulli er greinilega hans maður, það fer ekki á milli mála.
Ég held samt að drengurinn fái ekki að vaka í nótt til að horfa á kappaksturinn.