Í tengslum við síðustu færslu, þá var einhver sem benti mér á að helsta vafaatriðið við þetta væri hvort yfirleitt væri hægt að tala um ,,nokkur mjög góð íslensk veitingahús" - það er að segja hvort mjög góð íslensk veitingahús væru það mörg að hægt væri að tala um ,,nokkur" slík. Það er kannski umdeilanlegt - en er efni í allt aðra umræðu sem ég er ekki tilbúin að fara í. Ég kom allavega á fjögur af þeim bestu um síðustu helgi.