Brooklyn, Romeo og Cruz? Mér þykja þessi ágætu hjón nú ekkert yfirmáta snjöll í nafnavali, eða það er að minnsta kosti ekki verið að hugsa um að samræmi sé á milli nafna sonanna (átti þetta ekki annars að vera stelpa?).
En þau um það. Fólk má velja börnum sínum hvaða nöfn sem því sýnist mín vegna, bara á meðan það ætlast ekki til þess að ég hafi smekk fyrir þeim. Ekki frekar en ég ætlast til þess að allir séu hrifnir af nöfnunum á mínum afkvæmum.
Cruz Beckham? Það er einhvernveginn ekki alveg að virka.