Og ljúfmennið hann Lúther nágranni minn er bara búinn að afhjúpa sig sem eitt versta karlrembusvín landsins. Jahérna. Ég fór nú að athuga hvort dagbókin sem ég fékk frá Odda væri ein af þessum frægu (þær eru þegar orðnir safngripir), en nei, því miður, mín er ekki af þeirri sortinni. Hér er ég aftur á móti strax búin að rekast á tvær klausur sem ekki geta talist jákvæðar fyrir Bandaríkin: ,,Ameríkanar eru umburðarlyndir. Þeir skilja að maður geti verið alki, eiturlyfjafíkill, barið konu sína og jafnvel verið blaðamaður, en hafi maður ekki bílpróf, er eitthvað bogið við hann," - þetta er náttúrlega púra Bandaríkjahatur. Eins gott að Ingimundur Kjarval sjái ekki þessa dagbók, þá yrði Oddi að innkalla hana líka og leggja fram afsökunarbeiðni í bandaríska sendiráðinu.
20.1.05
- Æi, nú er þetta G-strengs-dæmi aftur orðið eins og...
- Ég fékk áðan próförk til baka með athugasemdinni ,...
- Það er svei mér þá hægt að mætast sumstaðar á göng...
- Þetta er nú með því furðulegra sem ég hef rekist á...
- Heyrði ég það rétt að konan sem var í Innlit-Útlit...
- Eiginlega er alveg ótrúlegt hvað þessir flutningar...
- Það er fallegt að horfa hér yfir að Úlfarsfelli í ...
- Við efnafræðistúdentinn skruppum út áðan. Ég var í...
- Búin að vera uppi í óbyggðum í mestallan dag. Óke...
- Þegar ég er í vondu skapi finnst mér gott að stúss...