Nú er mér aftur hætt að lítast á þetta.
Ég fór nefnilega með strætó í vinnuna í morgun. Í fyrsta skipti í fjöldamörg ár. Allt í lagi með strætóferðina sem slíka en ég lenti hvað eftir annað í lífshættu á svellbunkum á leiðinni. Var nærri runnin beint í veg fyrir bíl fyrir utan Landspítalann. Hlunkaðist næstum því ofan í poll hér uppi á Höfða. Aðeins alkunn fimi mín og lipurð sem bjargaði mér. Blotnaði í lappirnar.
Og þegar ég komst loksins í vinnuna reyndust báðar kaffivélarnar vera bilaðar.