Tony Bourdain kvað vera á landinu.
Ég á held ég allar bækurnar hans nema þessa sem hann skrifaði um Typhoid Mary. Glæpasögurnar líka. Var reyndar að fá Les Halles Cookbook núna fyrr í vikunni og er lítið farin að fletta henni. Hún hefur reyndar fengið misjafna dóma en við fyrstu sýn líst mér ansi vel á hana.
En hann mun vera búinn að boða komu sína á Vínbarinn. Ekki á Péturspöbb.