Gordon Ramsey sagði einu sinni að hann vildi ekki hafa kvenfólk í vinnu í sínu eldhúsi af því að þær gætu bara unnið í þrjár vikur af hverjum fjórum. Jamm. Hér er dálítið skemmtileg grein um konur í kokkastétt (í London) og kynjamun í eldhúsinu.
Mér fannst sérstaklega gaman að kommentunum um Eric Chavot í netsokkabuxum og háum hælum. Ég hef hitt hann og á svolítið erfitt með að sjá hann fyrir mér í dragi ...