(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

20.10.04

Ég hef slæma reynslu af því að mæta í Ísland í bítið skömmu á eftir einhverjum söngkonum. Samanber þegar Leoncie skandaliseraði svo um munaði í beinni útsendingu rétt áður en við Sólveig ritstjóri mættum í stúdíóið til að kynna Gestgjafann. En núna voru það bara stelpurnar úr Nælon og þær skandaliseruðu held ég ekki neitt. Allavega sýndist mér Einar Bárðar vera hæstánægður með þær þegar við sátum saman í sminkinu og horfðum á þær.

En þetta framlengdi súkkulaðiofmettunina mína um einhverja daga. (Ekki Nælonstelpurnar sko, þær eru meira Snickers en alvörusúkkulaði, heldur súkkulaðiréttirnir sem ég þurfti að gera í gærkvöldi til að mæta með í útsendinguna.)

|