(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

25.9.04

Kreuzschlitzschraubenzieher. Það finnst mér skemmtilegt orð. Og ég er búin að beita þessu ágæta verkfæri töluvert að undanförnu.

Nú er blessunin hann mágur minn búinn að festa upp ljósin fyrir mig og þá er eiginlega allt klárt í borðstofunni, ég á bara eftir að setja upp gardínur. Stofan er aftur á móti ekki búin, ég bíð enn eftir manninum sem ætlar að gera við loftið og svo þarf að mála. Annars er þetta satt að segja orðið eins og nýtt heimili.

Nú þarf ég bara að losna við efnafræðistúdentinn, þá verður þetta fínt. - Hann má reyndar alveg búa áfram heima hjá mömmu en ég þarf eiginlega að nota herbergið hans. Mig vantar bóka- og vinnuherbergi.

|