Þýðandi Malcolm in the middle þekkir greinilega ekki skötusel, kallar hann barðaháf. Monkfish á ensku er nefnilega heiti á tveimur ólíkum fisktegundum; þetta hér er barðaháfur. Kannski ekkert umtalsvert fríðari en ekki eins góður á bragðið eftir því sem ég best veit.