Var að uppfæra linkana, henda út nokkrum sem eru hættir eða komnir í yfirlýsta langa pásu, bæta við nokkrum sem hafa tengt á mig að undanförnu (ég er kannski að gleyma einhverjum en bæti þeim þá við þegar ég tek eftir þeim), setja einn inn aftur - ætlaði reyndar að endurskoða röðunina, breyta nöfnum á sumum o.fl. en nenni því ekki núna. Er í letikasti - búin að skila þýðingunni, græna blað Gestgjafans komið í prentsmiðju, ýmis verkefni að vísu fyrirliggjandi en ekkert sem bráðliggur á (ja, nema myndatakan fyrir grænmetisbændur á morgun og próförkin sem ég þarf að lesa yfir helgina og efnið sem ég þarf að setja inn á www.lambakjöt.is og ...).
Fjandinn, ég verð víst að slá þessu letikasti á frest. En frekari uppfærsla á krækjum bíður samt.