Gömlu hjónin eru að flytja af Smáragrundinni í dag og á morgun. Ég vildi að ég væri þar til að hjálpa en komst ekki norður þessa helgi. Systkini mín eru öll á staðnum með sitt fólk svo að það vantar svosem ekki mannskap - samt hefði ég viljað vera með.
Ekki samt til að kveðja bernskuheimilið eða neitt slíkt. Mér fannst ég aldrei almennilega eiga heima á Smáragrundinni eða á Króknum yfirleitt. Það hefur verið gott að koma þangað en bara af því að foreldrar mínir eiga heima þar; það verður áreiðanlega ekki síður gott að koma til þeirra í nýju íbúðina.