Eiginlega ætti ég að vera að lesa próförk að súkkulaðimatreiðslubókarþýðingunni sem ég var að ljúka við. Eða baka fyrir afmælisveislu dóttursonarins á morgun. Eða leita að uppskriftum fyrir grænmetisbændur eða sauðfjárbændur.
En þéttvaxni póstmaðurinn var að koma með pakka til mín. Diskar í þetta skipti. 'Allo 'Allo 1-4 og Red Dwarf 4. Það er bara of freistandi. Og ég hef jú alla helgina fyrir hitt.