Sauðargæran var svo hrifinn af nýju línuskautunum sem systir hans keypti sér í Kaupmannahöfn (og ég þurfti að drösla um endilangt England í töskunni minni) að hann sofnaði með þá á fótunum í gærkvöldi. Og spurði eftir þeim um leið og hann vaknaði í morgun og sá að hann var ekki lengur með þá.
Samt var hann hættur að kalla þá Línu langsokks-skautana.
Hann getur því miður (eða reyndar til allrar hamingju) ekki farið að nota gömlu línuskautana hennar. Í fyrsta lagi eru þeir enn allt of stórir á hann. Og í öðru lagi eru þeir bleikir og með myndum af Barbie.