Ég sit heima í dag og skrifa um súkkulaði og kökubakstur. Kannski ekki alveg veðrið til þess en ég kemst víst ekki hjá því ef ég á að geta lokið þessari þýðingu í tæka tíð. Reyndar þarf ég líka að gera nokkur létt salöt á eftir fyrir grænmetisbændur; það er allavega veður fyrir salöt núna.
En nei, það er hreint ekki veður til að hugleiða súkkulaði og smjör og síróp og marsípan og hnetukrem og bakstur ...