Er Sigmundur Ernir nýkominn frá sólarlöndum eða er hann bara svona asnalega meikaður?
Mér var einu sinni bent á að eyrun sneru öfugt á hausnum á honum. Konan sem hafði uppgötvað þennan sannleik sagðist að það hefði gerst þannig að hún stóð fyrir framan sjónvarpið og sneri baki í það, missti eitthvað á gólfið og beygði sig eftir því, og í þeirri stellingu varð henni litið á Sigmund Erni á milli fóta sér (hljómar þetta mjög dúbíus?) og þá rann þetta upp fyrir henni: Eyrun snúa öfugt á manninum. Ég prófaði þetta náttúrlega næst þegar Sigmundur Ernir birtist á skjánum, úr sömu stellingu, og viti menn: Þetta reyndist hárrétt athugað hjá konunni.