Ég held að ég sé búin að fá tuttugu og sjö tilboð um að kaupa Viagra bara núna í morgun. Ætli sé einhver ástæða fyrir þessu framboði á Viagra akkúrat þessa stundina? Kannski er það vorið - það virðist aftur á móti vera frekar rólegt á tippalenginga- og brjóstastækkanamarkaðinum núna, það ber mun minna á svoleiðis en oft áður.