Við gerðum stutt stopp á Vínbarnum eins og til stóð, eitt glas og svo heim. Hefðum kannski stoppað eitthvað lengur ef við hefðum hitt einhvern sem við þekkum en svo var ekki - reyndar mættum við Hreinsa Hreins og Völundi Bahamakokk á tröppunum þegar við vorum að fara út. Efnafræðistúdentinn (sem heitir ekki Guðmundur eins og þegar hefur komið fram) skemmti mér á heimleiðinni með svaðalegum drykkjusögum, ekki þó af sjálfum sér. Þær hefðu nú dugað rækilega til að koma í veg fyrir öll áform um frekari víndrykkju, ef ég hefði haft einhver slík.