Merkilegt hvað maður verður stundum svangur einmitt morguninn eftir að hafa borðað ótæpilega af einhverju góðgæti.
Alveg væri ég til með að vera að fara út að borða í hádeginu núna. En ætli ég endi ekki í 10-11 eins og oftast (kostur að hafa kjörbúð í sama húsi, vildi bara óska að það væri búð með skárra vöruúrval en 10-11). Kannski bara í súpu. Nokkuð stórt stökk frá kræsingunum í gærkvöldi. En hún kostar bara 99 krónur.
Efnafræðistúdentinn er búinn að fyrirgefa mér. Hann fyrirgefur mér nú ansi margt ef hans er freistað með lasagne.