Þar sem ég á enga(n) bónda til að vera góð við ákvað ég, í félagi við nokkrar aðrar varanlega eða tímabundið bóndalausar, að vera bara extra góð við sjálfa mig í staðinn í kvöld. Reyndar byrjuðum við á Vínbarnum upp úr miðju degi og drógum með okkur tvo virðulega karlmenn, sem báðir þurftu þó fyrr en varði að halda heim til sín, væntanlega til að láta konurnar sínar vera góðar við sig. Við héldum þá á Tapasbarinn, en þá voru þær hinar þegar komnar fjórum rauðvínsglösum fram úr mér í drykkju. Þar slóst í för með okkur maður sem skoraði í keppninni um kynþokkafyllsta karlmann landsins í dag, við átum á okkur gat, ræddum veitingahúsagagnrýni og drukkum meira rauðvín. Litum reyndar aftur við á Vínbarnum á eftir en þar sem þar var allt fullt og ég ekki í sérstöku skapi til að djamma fram á nótt ákvað ég að fara bara heim. Hætt að nenna þessu ... ætli það sé aldurinn?
23.1.04
- Ég er að fletta nýrri Viku sem var að koma á borði...
- ,,Við á femin mælum með að þið konur verðið virkil...
- Af því að Nanny Ogg's Coobook barst í tal á öðrum ...
- Það var verið að spyrja mig hér frammi áðan hvers ...
- Mér tókst að skera mig í puttann áðan þegar ég var...
- Ég var að fá áhugaverða bók áðan, Cooking in Botsw...
- Vinnufélagi minn einn, sem borðar stundum sérkenni...
- Merkilegt hvað maður verður stundum svangur einmit...
- Ég fann mjög ítarlega útskýringu á þessu með þríli...
- Aumingja efnafræðistúdentinn var horfinn þegar ég ...