Það var verið að spyrja mig hér frammi áðan hvers vegna ég væri ekki að gefa vinnufélögunum neitt góðgæti þessa vikuna. Ja, það hittist bara svona á ... Þetta gæti allt staðið til bóta í næstu viku, þá þarf ég að elda einhver ósköp og ætli eitthvað af því berist ekki hingað fram í almenninginn. Maður verður að viðhalda vinsældum sínum.
Ég sá frétt í sjónvarpinu í gær um einhverja kvensu sem var með námskeið fyrir einhleypar konur í karlaleit, þar sem áherslan var lögð á að kenna konum að markaðssetja sig. Ég er nú hamingjusamlega fráskilin og ekki í neinum sérstökum karlahugleiðingum en ef ég væri það, þá held ég að sé alveg ljóst hvernig vænlegast væri fyrir mig að haga markaðssetningu minni á sjálfri mér.