Ég skrapp í Kringluna með gagnlega barninu og barnabörnunum. Þar inní var rúntur um dótadeildina í Hagkaupum með Sauðargærunni og út úr honum kom þetta:
1) Stórir bílar eru rosalega spennandi. Einkum og sér í lagi trukkar með blikkljósum.
2) Dúkkukerrur eru ágætar líka en ekki ef er dúkka í þeim.
3) Það er til ótrúlega mikið af Bubba byggir-dóti og drenginn langar í það allt saman.
4) Bækur sem gefa frá sér pirrandi dýrahljóð ef maður ýtir á takka eru skemmtilegar.
5) Drengurinn er enn ekki búinn að uppgötva hvað ömmur geta verið veikar fyrir þegar sakleysisleg barnabörn sem langar í dót eru annars vegar. En það kemur.
Flottast af öllu var samt blátt tvíhjól með hjálpardekkjum í Útilífi. Það hefur gleymst að segja drengnum að tveggja ára börn eiga eftir þríhjólastigið áður en þau komast á tvíhjólaaldurinn. Ég var Vond Kona þegar ég tók hann af hjólinu sem hann var búinn að príla upp á með erfiðismunum og bar hann í burtu.
Ég fékk allavega ýmsar hugmyndir varðandi jólagjafir, bæði handa Sauðargærunni og efnafræðistúdentinum. Þótt sá síðarnefndi sé að mestu vaxinn upp úr dótaleikjum.