Maður hefur stundum heyrt um erfiða viðskiptavini á veitingastöðum og skyndibitastöðum. En þessi kona slær flesta út.
Og það út af majónesi á McDonalds-borgara. Ef ég skyldi einhvern tíma finna hjá mér óviðráðanlega löngun til að keyra yfir staffið á einhverjum veitingastað, þá vona ég allavega að það verði af verðugra tilefni (og þar sem ég borða ekki á McDonalds og ek ekki bíl, þá ættu ekki að verða miklar líkur á að þetta gerist).
En við sjáum til eftir jólahlaðborðið í kvöld.