Ég ákvað að sleppa öllum landsbyggðarferðum og lét Garðabæinn eiga sig. Of langur krókur þegar maður býr í innan við tíu mínútna göngufjarlægð frá samkomustaðnum.
Maturinn á jólahlaðborðinu var ívið betri en í fyrra.
Ég veit þó ekki nema ég hefði frekar viljað fá Geir Ólafs aftur. Eða nei, reyndar ekki, en Bergþór var ekki að standa sig.
Stelpurnar á Vikunni slógu alla karlsöngvara út með Leoncie-atriðinu sínu.