Mikið er ég spennt að vita hvort ekki verður stóraukin sala á Víkingalottómiðum þessa vikuna. Forstjóri bankans míns sagði jú í Kastljósinu í gær að það væri jafnörugg leið til ríkidæmis að kaupa svoleiðis miða eins og að gera samninginn sem hann þurfti svo að hætta við. Sá hefur ekki mikla trú á sjálfum sér í stjórahlutverkinu.
Kallgreyið. En hann getur alltaf keypt sér lottómiða.