Ég sé að Auðunn Blöndal hefur verið kosinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins. Hmm, ég er líklega of gömul til að vera dómbær á það. Ég ætlaði að fara að rifja það upp að ég hefði nú skipt um bleyju á honum þegar hann var lítill en þegar ég hugsa mig betur um man ég að það hefur líklega verið systir hans.