Sean Connery er í fréttunum á Sky, það er verið að frumsýna nýja mynd með honum. Hann er alltaf flottur, þeir gerast varla flottari á áttræðisaldri. Annars get ég ekki að því gert að mér hefur alltaf fundist hann langflottastur í dellumyndinni Zardoz. Sérstaklega út af rauðu bleyjunni (lendaskýlunni, en hún er svo bleyjuleg). Í Zardos segir hann meðal annars: ,,The penis is evil. The penis shoots seeds, and makes new life, and poisons the earth with a plague of men, as once it was. But the gun shoots death, and purifies the earth of the filth of brutals. Go forth and kill!"
Púra snilld.