Jarðskjálfti hvað? Ekki á Vínbarnum allavega. Eða ekki fann ég hann.
Við semsagt enduðum þar sem við byrjuðum, eftir fimm tíma á Humarhúsinu (meira um það á morgun) og klukkutíma á Borginni. Ég gafst svo upp og fór heim. Fékk enga fylgd frá stuttum Frakka upp Skólavörðustíginn í þetta skipti. Á leiðinni sá ég eina meiri háttar ælu og tvær minni háttar, einn strák að pissa upp við vegg og engin slagsmál. Mjög róleg nótt í miðbænum semsagt.