Ég veit að ég er að blogga alveg óþarflega mikið um sjónvarpsþætti og bíómyndir þessa dagana en lífið er bara ekkert skemmtilegt akkúrat núna og þegar þannig stendur á get ég valið um það að leggjast í heimsósómanöldur og hafa allt á hornum mér, eða skrifa um eitthvað álíka merkilegt og sjónvarpsdagskrána. Þriðji möguleikinn er reyndar að skrifa uppskriftir og það er ekkert útilokað að eitthvað slíkt fæðist á eftir. En ekki fyrr en ég er búin að horfa á Red Dwarf.
En fyrir áhugafólk um mat og Red Dwarf, þá ætla ég að benda á þetta hér: The Red Dwarf Food and Drink Guide.