Sláturterta og rabarbarakaramella
Ég gæddi mér á sláturtertu með berjasósu og rabarbarakaramellu í eftirrétt í hádeginu í boði Stefnumóts bænda og hönnuða.
Það var bara hreint ekkert slæmt. Mjög gott satt að segja.
Sláturtertan fæst reyndar bara í Möðrudal á Fjöllum en rabarbarakaramellur má fá í Vínberinu. Mæli með hvorutveggja.