Við Sauðargæran vorum að ræða um öskudagsbúninga áðan. Hann ætlar að vera Kóngulóarmaðurinn, enda á hann þennan fína Spiderman-búning sem mamma hans keypti handa honum í London.
Sauðargæran: -En hvað ætlar þú að vera, amma?
Amman: -Tja, ætli ég verði ekki bara ... amma?
Sauðargæran (horfir á ömmu sína): -En þú átt engan búning.
Það er alveg satt hjá honum. Ég á engan ömmubúning ... Ætli ég þurfi ekki að verða mér úti um gráa hárkollu, lonníettur og rósóttan kjól til að vera nógu ömmuleg á öskudaginn?