(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

10.5.05

Aumingja efnafræðistúdentinn er að fara í próf. Hann er lasinn með hita en ætlar samt í prófið. Móðurhjarta mitt er náttúrlega uppfullt af vorkunn og drengurinn á alla mína samúð.

Og svo eru það heteróhringirnir á fimmtudaginn. Ég veit ekki hvað heteróhringir eru þótt það hafi oftar en einu sinni verið reynt að útskýra það fyrir mér þrátt fyrir kröftug mótmæli mín. En mér finnst þetta samt mjög fyndið nafn á námskeiði. Get ekki að því gert.

Einhverjir af vinum efnafræðistúdentsins hafa verið að hringja í hann að undanförnu bara til að láta hann vita að þeir séu búnir í prófum. Þeir eru núna fyrrverandi vinir hans.

|