Sauðargæran er búin að tilkynna að nú heiti hann Jakob. Gegndi ekki öðru nafni í morgun, hvorki heima hjá sér né í leikskólanum. Hann er víst búinn að horfa mikið á Bangsímon að undanförnu.
Eins gott að hann ákvað ekki að breyta nafni sínu í Eyrnaslapi.