Svona fer hermennska með menn. Enn ein ástæða til að vera á móti sérsveitinni hans Björns B.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag. Ég veit ekki hvort maður á að viðurkenna svoleiðis en ég er dauðfegin því að hafa ekki planað að berjast fyrir nokkrum sköpuðum hlut í dag. Ég er þreytt og syfjuð og nenni ekki að standa í slíku. Mig langar bara til að fara heim og elda eitthvað gott. Reyndar bakaði ég pitsu og útbjó tómatsalat fyrir okkur á Gestgjafanum í hádeginu og það bjargaði miklu en núna langar mig að gera eitthvað gott úr afganginum af lambalærinu frá í gær. Ef efnafræðistúdentinn verður ekki búinn að éta það allt þegar ég kem heim.