Efnafræðistúdentinn var að tala um mann sem hann þekkir áðan og kallaði hann ,,samkynhneigðan homma". Ég er svo fattlaus stundum, en eru til einhverjar aðrar sortir af hommum?
Minnti mig á þegar Helgi Skúta sagði um eina skólasystur okkar að hún væri lesbískur karlmaður í dulargervi. Sú líking var of djúphugsuð til að mér hafi nokkru sinni tekist að skilja hana.