Hjálp ... Ég er föst hér alla helgina með tveimur ungum fótboltabrjáluðum frændum mínum. Þeir sátu í allt gærkvöld og gerðu fjárhagsáætlun fyrir fótboltaliðið sem þeir ætla að stofna, skipulögðu leikmannakaup og hvaðeina - og svo var ekki rætt um annað en fótbolta. Hvað hefur eiginlega komið yfir þessa fjölskyldu? Ég hefði sokkið ofan í þunglyndi ef pabbi hefði ekki birgt sig upp af rauðvíni fyrir helgina. Eins gott að drengirnir verða hér ekki alla vikuna ...