Það er nú ekki mikið reykt á þessu heimili. Eini öskubakkinn sem til er í eigu minni fannst áðan úti á svölum, fullur af vatni sem var botnfrosið og nokkrir sígarettustubbar innifrystir á botninum eins og mammútar. Enginn veit hvað hann er búinn að vera þar lengi.
Ég er að sjóða stóóóóran skammt af kjötsósu til að nota í lasagne og efnafræðistúdentinn launar fyrir sig með því að skúra gólfin.