(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

15.11.02

Ég tók eitthvert karlkonupróf sem ég fann hjá Eddu og komst að því, sem mig hefur lengi grunað, að ég er að minnsta kosti hálfur karlmaður. Samt get ég gert fleira en eitt í einu (sérstaklega ef það tengist eldamennsku) og ég get ekki bakkað í stæði en ég get heldur ekki keyrt beint inn í stæði, þar sem ég hef aldrei tekið bílpróf.

Ég þarf aftur á móti ekki að taka hin prófin á síðunni, plebbaprófið og sigurvegaraprófið. Ég veit að ég er plebbi og meðalmaður, ég er sú týpa. Þegar ég tek svona próf enda ég yfirleitt sem eitthvað frekar hallærislegt, gott ef ég var ekki Anna Nicole Smith á ljóskuprófi sem ég tók um daginn. Annars var einhver að halda því fram við mig að hún væri svo hallærisleg að hún væri flott. Kannski var það bara til að hugga mig.

|